Guðrún Jóna hugsar..
Ég á mér draum um Frelsi -

Með frelsi er á vissan hátt átt við rétt til að gera það sem mann langar, hugsa, trúa, tala, flytja, safna og almennt vera þú sjálfur upp að því marki þegar þú byrjar á að brjóta á frelsi annara.

Þetta skilur samt mikið eftir til túlkunar. 

Það er langur listi af hlutum sem er heimilt að gera en fæstir myndu  gera og ef við myndum gera það værum við að fara yfir ákveðna línu sem samfélagði hefur samþykkt ( og erum jafnvel að skemma fyrir öðrum) t.d. öskra eldur eldur á miðri leiksýningu. 

Ég er með þokkalega skýra mynd í hausnum á hvað frelsi þýðir fyrir mig og hvaða takmörkunum það er í raun háð. Mín sýn kemur síðar en hér kemur sýn frá snillingi sem ég vil gera að minni í dag. 

Franklin Delano Roosevelt : 

” Við hlökkum til heims stofnað á fjórum mikilvægum stoðum frelsisins.

* Í fyrsta lagi er málfrelsi og tjáning - alls staðar í heiminum.

* Annað er frelsi hvers einstaklings til að tilbiðja Guð á sinn hátt - alls staðar í heiminum.

* Þriðja er frelsi frá skorti; Það þýðir efnahagslegur skilningur verður að ríkja sem mun tryggja að sérhver þjóð á rétt á að lifa í friði - alls staðar í heiminum.

* Fjórða er frelsi frá ótta- Það þýðir að við drögum úr framleiðslu vopnabúnaðar þangað til að við náum þvi að  engin þjóð mun vera í aðstöðu til að fremja glæpi/árás geng neinni þjóð  -hvar sem er í heiminum.

Það er engin sýn fjarðlægar aldir. Það er ákveðinn grundvöllur fyrir hvers konar heim að ná í eigin tíma okkar og kynslóð.” 

Þessi ræða var skrifuð/sögð 1941.

Valdabarátta og tilhneyðingin tið að vilja drottna yfir öðrum hefur komið í veg fyrir að þessir punktar hafa leitt okkur áfram i átt að betri heimi . 

En hvernig mun mín kynslóð skilja við jörðina og mannkynið þegar okkar tími kemur!

Vonandi með meiri virðingu fyrir þeim sem eftir koma en hefur verið gert hingað til. 

Vonandi af meiri virðingu við nágranna okkar - hvar sem þeir eru á jörðinni. 

- gleðilegan sunnudag. 

Réttlæti ekkert ranglæti ! Talar í ræðustól á Sænskaþinginu. 

Réttlæti ekkert ranglæti ! Talar í ræðustól á Sænskaþinginu.